Skvízurnar

SKVÍZURNAR

16.01.2008 20:40:23 / gydalind

helgin...

Jæja stelpur...þá þurfum við að fara að panta okkur borð...

Er með nokkrar spurningar sem ég ætla að biðja ykkur um að svara...:)

Hvar vilt þú borða?

Kl. hvað eigum við að borða?

Eigum við að fara beint niðrí bæ eða heim í millitíðinni?

Ef við förum heim...heim til hverrar þá?

Allir að staðfesta komu sína...Anna Rósa ætlar að panta svo þið verðið að tala við hana eða skrifa það hérna inn fyrir kl. 17 á morgun ( fimmtudagur 17. janúar)

Erum búnar að finna nokkra staði...endilega veljið einn af þeim, en ef þið eruð algjörlega á móti þeim, nefnið þá annan stað!

Cafe Victor http://www.victor.is/

Cafe Aroma ( er reyndar í Hafnarfirði) http://www.aroma.is

Ítalía http://www.italia.is

Askur http://www.askur.is/

Vegamót http://www.vegamot.is/

Endilega kíkið á þessa staði! :D

                                           Kv. Gyða


» 13 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 20:20:04 / gydalind

fyrsti hittingur 2008!

jæja...þá er komið að því...fyrsti hittingur ársins 2008! :D

Við Anna Rósa erum búnar að vera að spjalla um þetta...

laugardagurinn 19. jánúar!!!

Hvernig hentar það ykkur?

Pælingin er að elda eitthvað samam eða fara út að borða og sjá svo til hvernig það endar? ;)

Auðvita verða allir að kíkja í ÁTVR fyrir hittingin nema þá Sólveig og Birgitta (því auðvita þurfum við drivera! ;) )

En hvað segið þið dömur mínar...

látið ljós ykkar skína í komentum! :D

                        Kveðja, Gyða Lind


» 21 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 21:36:32 / gydalind

hittingur og fl

Fyrst vil ég óska Kötu til hamingju með það að komast inn í lækninn í Ungverjalandi og vonandi gengur allt eins og í sögu! 

Svo vil ég óska Birgittu og Helga til hamingju með bumbuna!

Þessi síða er ekkert að ganga hjá okkur og það auðvita gengur ekki!!!

Förum nú að hífa hana aðeins upp!

Næsta mál á dagskrá:

Nú er komið að því Dala-skvízur !

Hittingur heima hjá Heiðrúnu í Árbænum laugardagskvöldið 20.október

Uppkast af dagskránni:
20:00-Fordrykkur+ ostur*
21:00-Matur**
22:00- ...Skrall og flipperí


* sérstaklega fyrir Birgittu
**aðstoð óskast ef eldað á heima annars verður orderað inn takk fyrir

Það er eins gott að þið komið...og Anna láttu Jón svo vera með Ólaf og mundu að koma með bjór!   Alltof langt síðan við skelltum okkur á fyllerí og fengum lélega þjónustu á Nonnabitum!

Annar hvet ég ykkur til að koma þessari síðu aðeins í gang!

-Gyða


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.08.2007 00:04:38 / gydalind

fyllerí!

hell jeahh!! :D

Yfir og út frá Kjalarnesinu á leið í Reykjavíkina,

Gyða, Anna, Kata

                       (og Sólveig driver) ;)

 

 

 

......(og Elín...sem enginn veit hver er! )
;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 21:59:11 / hharpa

Menningarnótt??

Jæja kæru vinkonur...

Hvað er planið hjá ykkur á menningarnótt?????

Ég legg til að allir svari og við búum til svaka teiti hérna í borg óttans:D

Annað mál á dagskrá ef það hefur farið framhjá einhverjum að þá er kveðjuteiti hennar Dr. Katrínar föstudagskvöldið 24.ágúst!

Vonast til að fá eitthver svör...því ekki langar mig mikið til að vera ein á menningarnótt:(

Kv. Heiðrún mega skvíz;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 19:03:06 / gydalind

Verslunarmannahelgin!

ójá stelpur mínar...þetta nálgast allt saman!!

Hvað er svo planið hjá ykkur að gera þessa mestu djammhelgi ársins?

Ég veit nú hvað einhverjar af ykkur ætla að gera...

Það eru þónokkrar af okkur sem ætlum til EYJA  og þar verður auðvita aðaldjammið!

Síðan vorum við Sólveig að pæla hérna í vinnuni hjá mér...þegar hún kom í heimsókn hvenær við ættum að safnast allar saman og skella okkur í sumarbústað?

Sólveig var eitthvað að tala um helgina...uuu....7-9 sept eða þarna 14-16 sept...man ekki alveg...hvort var það Sólveig?

Er ekki síðan málið að taka eitt kveðju djamm fyrir verðandi dr. Kötu? 

Miðaðvið aupplýsingarnar á síðunni hjá henni Ingibjörgu þarf hún Kata okkar að vera farin út fyrir 28. águst! satt Kata?

Hvenær eigum við þá að taka eitt stykki rosa djamm?

Ætla einhverjir á Danska daga? miðaðvið hvað þetta var leiðinlegt í fyrra þá er ég frekar að hugsa um fiskidaga í Þórlákshöfn! held að það sé helgina eftir versló...hvernig er hún hjá ykkur? eða mig minnir allavega að þetta sé þá!

Annars...hvaða helgi hentar ykkur best í að hittast? öss...það er ennþá svo mikið að gera í ágúst að við eigum aldrei eftir að finna helgi þar sem við komumst allar...hehe

en jæja stelpur mínar...vinsamlegast svarið þessu spurningaflóði hjá mér!

heyrums,

              Gyða  


» 23 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 02:10:37 / hharpa

Leifshátíð!!!!!!!!!!!!!

Jæja dömur mínar...

Þá fer að koma að þessari merkishelgi...LEIFSHÁTÍÐ Í DÖLUM!!!

Þar sem við erum nú allar komnar með aldur til að skreppa í nöfnu mína og önnur útibú að þá legg ég til að við tökum eitt stykki suddalegt tjútt! 

Sólveig Rós djamm-skvízan mætir á svæðið og hefur lofað að halda uppi fjörinu á dansgólfinu.  

Ingibjörg getur tekið söngin að sér ef hljómsveitin klikkar...Kata tekur upp þverflautuna og þær rifja upp gamlar stundir þegar þær spiluðu með Magna Rockstar;)

Gyða hefur lofað að reyna að verða ofurölvi, æla og halda áfram að drekka.  Það verður fróðlegt að sjá hvort það sé mögulegt fyrir hana að rúlla í bólið?

Ég, Heiðrún, hef hvorki dans-, drykkju né söng hæfileika en ég lofa að vera í miklu stuði og reyna að halda uppi fjörinu með kímnigáfu minni og gleði:haha: 

Ekki veit ég um plönin hjá Birgittu, Önnu Rósu og Eggrúnu en þær verða eflaust allar í miklu stuði:)

Ég hlakka til að sjá ykkur um helgina...rúllandi, skoppandi, á fjórum fótum eða tveimur...þið eruð alltaf skemmtilegar;)

Kv. Heiðrún skvíza:haha:

Btw. Til hamingju með aldurinn Birgitta og Sólveig;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 23:38:17 / gydalind

AFMÆLI AFMÆLI!!!

Hæ þið!

Ykkur er boðið í 20 ára afmæli okkar 30.júní! \ Sveita-teiti af bestu gerð...Ábrestir spila undir dansi í hlöðunni upp í Tungu í Hörðudal, þannig að takið lopapeysurnar og gúmmítútturnar til að tjútta. http://files.msndollies.com/614.gif Boðið verður upp á áfengi á meðan birgðir endast en mælst er með að fólk taki eilítið bús og grillmeti með sér.
\

Endilega láttu vita ef þú kemst ekki...
en annars hlökkum við til sjá þig \
Kv. Gyða og Heiðrún
\

» 11 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 07:58:42 / birgittayr

Til hamingju stelpur;)

Ég vildi bara óska stelpunum innilega til hamingju með útskriftina.

Ingibjörg, Heiðrún Harpa, Linda & Gyða Lind. Innilegar hamingjuóskir með að vera búnar með þennan áfánga í lífinu, æðislegt hjá ykkur.

Svo er veislan hjá Kötu næstu helgi, og ég vil bara óska henni líka innilega til hamingju með útskriftina sína. Bara hafa þetta allt í einum pakka;)

En þetta var nú svona það eina sem ég vildi koma á framfæri. Hef voða lítið annað að segja þannig að ég læt þetta bara gott í bili:D

Kveðja úr Hveró

Birgitta Ýr


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 14:19:30 / Anna

Til hamingju Ingibjörg

Ég vildi bara byrja á að óska Ingibjörgu og Víði til hamingju með flotta íbúð;) Ég er sko búin að kíkja á hana og hún er bara rosa flott:D

En ég vil líka lýsa óánægu minni á þessari austurevrópusöngvakeppni sem við erum alltaf að reyna að taka þátt í og eyða peningum í það en eigum auðvitað ekki séns þar sem þetta er nú bara klíkusöngvakeppni:evil: Og svo var nú bara eitt lag sem var virkilega gott og nokkur sæmileg. En Ungverjaland var með besta lagið á laugardaginn;)

Voruð þið annars ánægð með úrslit kosningana?? Ég er bara nokkuð sátt sko:lol: Segi samt engum hvað ég kaus því Jón Ingi er að drepast úr forvitni:klikk:

Segi þetta gott í bili. farið þið svo að koma með fréttir líka;)

Anna


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 16:16:25 / Anna

eurovisionpartei

Jæja stelpur hvernig væri að hittast yfir árlegri söngvakeppni evrópubúa? Er eitthvað planað? Ef ekki þá get ég bara rekið karlmennina á heimilinu í sveitina eða bara í annað herbergi og við gætum djammað alla nóttina hér og þær sem ekki hafa far heim geta bara verið hér...nóg pláss enda fín og stór íbúð sem ég á8) Og svo á ég nú eftir að halda bæðu uppá afmælið mitt og innflutningspartí.

En ef eitthvað er planað hvað er það þá??

Svo væri nú líka gaman að hittast og horfa á kostningavöku og veðja hver vinnur og búið til eitthvern drykkjuleik úr því...er það ekki?

svo má auðvitað alltaf búa til drykkjuleiki yfir söngvakeppninni. Bara skemmta okkur saman...endilega kommentið.

 Anna


» 14 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 00:27:18 / hharpa

Hún á afmæli í dag...HÚN KATRÍN!!!!

Elsku skvízur...

Nú í dag eru 20 ár síðan stuðboltinn og námskonan mikla fæddist. Já mikið rétt...engin önnur en hún Katrín Björg. Við minnumst nú öll þess þegar þessi bleik-klædda og ljóshærða frík varð hluti af lífi okkar. En já, vonandi áttu gleðilegan dag elsku besta krúsídúllan mín

Í lokin læt ég fylgja nokkrar glæsilegar myndir af þessari ungu stúlku sem þykir sopinn góður, enda komin með aldur til að heimsækja hana nöfnu mína

 

....svo vaknaði ég og byrjaði strax að  DJAMMA  !!!  újé!

,,Hellt í glasið aftur"

TIL HAMINGJU KATA MÍN

Þín vinkona

Heiðrún Harpa 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 11:28:13 / Anna

verðum að vera duglegri

Jæja stelpur er ekki komin tími á færslu hjá okkur?

Ég var að pæla hvort við ættum ekki að fara að finna okkur eitthvað skemmtilegt að gera saman. T.d. að fara út að borða, fara í bíó eða jafnvel bara hittast heima hjá eitthverri okkar. Þetta þarf ekkert endilega að vera um helgi.;) Hvað segið þið um það?

Annars fannst mér gaman að hitta ykkur á síðustu helgi og ballið heppnaðist einstaklega vel að mínu mati:haha: Það var þónokkuð mikil ölvun og mikið dansað og mikið sungið:haha: Mér fannst þetta ball nú samt enganvegin toppa sálarballið fyrir tveimur árum en það verður líka erfitt;)

Ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að skrifa, svona í ljósi þess að ég geri kannski ósköp fátt svona dagsdaglega og legg því til að þið sem eigið öllu viðburðaríkara líf fari að standa ykkur í blogginu8)

Ég kveð

Anna:haha:

Það er komin ný skoðanakönnun.


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 07:53:07 / birgittayr

Jörfagleði

Jæja, þetta er í fyrsta sinn sem ég blogga hér inná.

 En eins og flest allir vita að þá er jörfagleðin næstu helgi og verður þá fótboltamót og ball þann 21.apríl og vona ég að þið ætlið nú allar að mæta:D

 

Endilega kommentið og segið hvort þið ætlið að mæta eða ekki;)

Kveðja úr Hveró

Birgitta Ýr


» 12 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 08:33:25 / Anna

Afmæli

Jæja stelpur ég var að hugsa um að halda smá afmælisteiti og þá var planið að bjóða ykkur skvízum hingað í bjór og veitingar;)

Planið var sko að senda karlmennina á heimilinu í sveitina og djamma bara á kjalarnesinu!!! Hvernig hljómar það?

En núna er bara spurningin hvenær þetta henntar best:| Endilega kommentið um það hvenær þið komist og svo verður þetta planað;)

Anna


» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill
Leitarbox

Dagsetning
10. febrúar 2012
Myndasöfn